Fréttir
Lionsfélagar selja dagatal á Glerártorgi
25.11.2022 kl. 10:00
Mögnuð ljósmynd Eyþórs Inga Jónssonar af Hraundranga prýðir forsíðu dagatals Lionsmanna að þessu sinni.
Félagar í Lionsklúbbi Akureyrar verða á Glerártorgi eftir hádegi í dag, föstudag, og á morgun þar sem þeir selja dagatal klúbbsins. Lionsklúbbur Akureyrar hefur gefið út slíkt dagatal til margra ára.
„Þetta er aðal fjáröflunarleið okkar og allt féð rennur beint til líknarmála,“ segir Reynir Karlsson Lionsfélagi við Akureyri.net. Bjæarbúar hafa jafnan tekið dagatalinu vel að sögn Reynis og þannig stutt dyggilega við starfið. „Dagatalið er stórglæsilegt í ár, með myndum eftir Eyþór Inga Jónsson, Hörð Geirsson og Hilmar Friðjónsson.“