Fara í efni
Fréttir

Líknarmiðstöð SAk formlega stofnuð

Líknarmiðstöð Sjúkrahússins á Akureyri hefur formlega verið stofnuð og af því tilefni var haldinn fræðsludagur um líknarþjónustu síðastlinn fimmtudaginn.
 
Heilbrigðisráðuneytið gaf út aðgerðaráætlun árið 2021 um líknarþjónustu til fimm ár, þar sem margt var lagt til grundvallar um áherslur þjónustunnar, sett upp meginþema og aðgerðir skilgreindar og tímasettar. Meðal annars áttu bæði Sjúkrahúsið á Akureyri og Landsspítalinn að koma á fót líknarmiðstöð þannig að þær yrðu tvær á landinu.
 
 
„Líknarmiðstöð á að vera þekkingareining sem hefur það hlutverk að veita ráðgjöf, stuðning, fræðslu og þjálfun til þjónustuveitenda um allt land. Líknarmiðstöð á að bera ábyrgð á klínískum leiðbeiningum um líknarmeðferð, þróa gæðavísa og þannig aukið aðgengi að sérfræðiþekkingu um líknarmeðferð. Einnig er áhersla á að auka þekkingu almennings á líknarþjónustu,“ segir í tilkynningu.
 
 
„Á SAk hefur verið farið í greiningarvinnu um stöðu líknarþjónustu innan stofnunarinnar og rýnt í það hlutverk sem stofnuninni er ætlað að veita út frá aðgerðaráætluninni. Sú vinna hefur gengið vel og ágætlega tekist að rýna í þá þætti og leggja mat á hvernig við getum mótað okkar líknarþjónustu. Það er því ánægjulegt að koma á fót slíkri líknarmiðstöð sem er upphafið að festa í sessi þá hugmyndafræði og þá sérfræðiþekkingu sem við höfum og viljum búa til hér innan SAk. Á sama tíma að búa til þekkingareiningu sem líknarmiðstöð er ætlað að veita með sinni sérfræðiþekkingu til annarra stofnana á okkar upptökusvæði.“
 
Fræðsludagurinn var vel sóttur að sögn og margir hlustuðu í streymi „sem okkur fannst mikilvægt að geta boðið uppá því það er einmitt eitt af mikilvægustu hlutverkum líknarmiðstöðvar SAk, að geta veitt fræðslu til starfsmanna annarra stofnana á landsbyggðinni.“