Fara í efni
Fréttir

Líkhúsinu verður mjög líklega lokað

Höfðakapella og líkhúsið á Naustahöfða við kirkjugarðinn. Mynd: Þorgeir Baldursson

Allt stefn­ir í að lík­hús­inu á Ak­ur­eyri verði lokað í sum­ar­byrj­un. Þetta staðfest­ir Smári Sig­urðsson, fram­kvæmda­stjóri Kirkju­g­arða Ak­ur­eyr­ar í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag. 

Líkhúsið var auglýst til sölu í nóvember á síðasta ári og þá brá mörgum í brún. Ástæðan var sú að að kirkjagarðarnir fá enga fjármuni til að reka líkhús og „okkur eru allar bjargir bannaðar til að afla tekna til að reka líkhús og athafnarými. Þess vegna er enginn annar kostur en að losa okkur frá þessum rekstri sem enginn vill kosta,“ sagði Smári við Akureyri.net eftir að húsið var auglýst til sölu.

Heimilt að reka líkhús

Kirkjugarðar landsins hófu að rukka líkhúsgjald á sínum tíma en sú ákvörðun var kærð til umboðsmanns Alþingis sem úrskurðaði á þann veg að innheimta gjaldsins væri óheimil. Engin stoð væri fyrir því í lögum. „Opinber fyrirtæki mega ekki rukka neitt nema fyrir því sé lagastoð. Umboðsmaður sendi dómsmálaráðuneytinu úrskurðinn. Löggjafinn þyrfti að segja til um hvort rukka mætti gjald af þessu tagi eða ekki,“ sagði Smári í fyrra.

Smári sagði að enginn bæri ábyrgð á rekstri líkhúsa. „Frá því heilbrigðiskerfið gefur út dánarvottorð þar til kirkjugarður tekur við hinum látna er algjört gat í kerfinu; engum ber að sjá um ferlið frá dánarvottorði til greftrunar.“

Staðan er sem sagt sú að verði líkhúsinu lokað verður það verkefni aðstandenda að sjá um að geyma líkið einhvers staðar fram að greftrun.

Hægar en snigillinn

Enginn sýndi því áhuga að kaupa húsið til að reka þar óbreytta starfsemi. „Við erum bún­ir að vera í sam­skipt­um við dóms­málaráðuneytið út af mál­inu og höf­um verið það allt frá ár­inu 2011,“ seg­ir Smári í Morgunblaðinu í dag og nefn­ir að fundað hafi verið með öll­um dóms­málaráðherr­um frá þeim tíma. „Það verður að segj­ast eins og er að stjórn­sýsl­an í þessu máli geng­ur hæg­ar en snig­ill­inn,“ seg­ir hann, en viðbrögð ráðuneyt­is­ins séu þau ein að verið sé að vinna í mál­inu.

Verði líkhúsinu á Akureyri lokað verður einungis eitt slíkt starfandi hér á landi, á vegum Kirkju­g­arða Reykja­vík­ur.