Fréttir
Leita húsnæðis fyrir fjölskyldur frá Úkraínu
30.04.2023 kl. 06:05
Fánar Akureyrar og Úkraínu. Mynd af vef Akureyrarbæjar
Von er á þremur fjölskyldum frá Úkraínu til Akureyrar í maímánuði og bráðvantar húsnæði fyrir þessar fjölskyldur. Velferðarsvið Akureyrarbæjar auglýsir nú eftir 2ja til 4ra herbergja íbúðum fyrir fólkið sem væntanlegt er á næstunni.
Samkvæmt frétt á vef Akureyrarbæjar hafa nú þegar um 110 manns frá Úkraínu og fleiri stríðshrjáðum löndum komið til Akureyrar á innan við ári. Von er á fleira fólki á næstu vikum og mánuðum, en fyrst um sinn bráðvantar húsnæði fyrir þær þrjár fjölskyldur sem væntanlegar eru í maí.
Fólk sem hefur í boði mögulegt leiguhúsnæði er beðið um að hafa samband með tölvupósti í netföngin embla@akureyri.is eða drifabda@akureyri.is.