Leiðir að vellíðan á Amtsbókasafninu
Í nóvember standa Amtsbókasafnið á Akureyri og Sjálfsrækt heilsumiðstöð að fyrirlestraröðinni Sjálfsrækt – leiðir að vellíðan. Fyrirlestrarnir fara fram á Amtsbókasafninu kl. 17:00 á hverjum mánudegi og eru öllum opnir.
Í fyrirlestrunum fjalla Guðrún Arngrímsdóttir og Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir frá Sjálfsrækt heilsumiðstöð um aðferðir sem geta stuðlað að bættri heilsu og aukinni vellíðan. Þær hafa báðar áratuga reynslu af heilsuþjálfun, ýmis konar fræðslu og námskeiðahaldi, auk þess sem þær eru báðar með diplómur í jákvæðri sálfræði, að því er segir í tilkynningu frá Amtsbókasafninu.
Í tilkynningunni segir: „Fyrirlestrarnir byggja á „fimm leiðir að vellíðan“ sem eru gagnreyndar aðferðir til að auka bæði vellíðan og lífshamingju. Fjalla þeir um félagstengsl, hreyfingu og næringu, núvitund og sjálfsumhyggju, styrkleika og vaxtarhugarfar, ásamt því að gefa af sér. Leggja þær stöllur sérstaka áherslu á að kynna praktískar leiðir fyrir hvert og eitt til að auka sína vellíðan með einföldum aðgerðum.“
Fyrsti fyrirlesturinn verður á morgun, mánudaginn 1. nóvember, þegar fjallað verður um félagstengsl.
Fyrirlestrarnir eru þessir:
- 1. nóvember – Félagstengsl
- 8. nóvember – Hreyfing og næring
- 15. nóvember – Núvitund og sjálfsumhyggja
- 22. nóvember – Styrkleika- og vaxtarhugarfar
- 29. nóvember – Að gefa af sér