Leiðindaveður, bálhvasst og úrkoma
Hvasst hefur verið á Akureyri síðan síðla nætur og þónokkur úrkoma. Appelsínugul viðvörun Veðurstofunnar tók gildi í rauðabítið og gildir þar til snemma í fyrramálið.
Spáð er 15 til 23 metrum á sekúndu og slyddu eða snjó á heiðum og allvíða talsverðri eða mikilli úrkomu. Færð er sögð versna ört á fjallvegum og samgöngutruflanir eru líklegar. Ekki er vitað til þess að neins staðar hafi orðið tjón vegna veðursins.
- Hvað þýðir appelsínugul viðvörun? Miðlungs eða miklar líkur eru á veðri sem valdið getur miklum samfélagslegum áhrifum, tjóni og/eða slysum og ógnar mögulega lífi ef aðgát er ekki höfð. Skerðing á samgöngum og innviðum/þjónustu tímabundin/staðbundin.
Eftir mikið logn undanfarið, þar sem gult og rautt og grænt lauf prýddi tré og runna um allan bæ má segja að Akureyri hafi breytt um svip eftir að hvessti; laufið fór á flug auk þess sem litadýrðin er ekki söm.
Öllu flugi hefur verið aflýst fram eftir degi nema hvað vél sem á að fara frá Akureyri til Tenerife um þrjúleytið er sögð á áætlun.
Margir ökumenn vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og létu setja vetrardekk undir bíla sína í gær og í morgun.
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson