Langar þig til að reka Smámunasafn Sverris?
Eyjafjarðarsveit hyggst ekki reka Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Sólgarði í sumar heldur hefur sveitarfélagið auglýst eftir áhugasömum aðila til að taka að sér sýninguna. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins.
„Leitað er eftir aðila sem er til í að taka að sér sambærilega opnun sýningarinnar og verið hefur undanfarin ár,“ segir þar. „Viðkomandi fær tekjur af aðgangseyri safnsins óskertar til sín og á tök á að auka tekjur sínar með kaffisölu og/eða sölu á eigin munum á svæðinu þar að auki. Ekki er um að ræða stöðu starfsmanns hjá Eyjafjarðarsveit heldur er auglýst eftir sjálfstæðum aðila sem hefur áhuga á að láta reyna á eigið frumkvæði og getu til að blómstra í skemmtilegu umhverfi Smámunasafns Sverris Hermannssonar.“
Áhugasömum er bent á að senda fyrirspurnir á finnur@esveit.is en einnig tekið fram að hægt sé að fá frekari upplýsingar um verkefnið á virkum dögum hjá Stefáni í síma 463-0600.
Síðan segir: Umsóknir skal senda á esveit@esveit.is, skal þeim fylgja kynningarbréf á einstaklingnum eða hópnum sem vill taka að sér verkefnið sem og hvaða sýn viðkomandi aðili, eða aðilar, hafa á nálgun verkefnisins. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2023.