Fara í efni
Fréttir

Landsbankinn tók hæsta tilboði í húsið

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Landsbankinn hefur tekið hæsta tilboð í hús bankans við Ráðhústorg á Akureyri. Húsið var auglýst til sölu á dögunum, sjö tilboð bárust og bankaráð samþykkti á fundi í dag að taka því hæsta. Unnið er að gerð samninga á grundvelli þess.

„Eins og fram hefur komið ætlum við okkur að leigja hluta af húsinu undir áframhaldandi starfsemi og útibúið verður því áfram í húsinu þar til annað verður ákveðið,“ sagði Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans við Akureyri.net í dag. Aðspurður um kaupanda og kaupverð segir Rúnar að frekari upplýsingar verði gefnar þegar samningar hafi verið undirritaðir.