Fréttir
L-listi, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur mynda meirihluta
26.05.2022 kl. 12:18
Fulltrúar L-listans, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks hafa komist að samkomulagi um að mynda meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar. Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu frá oddvitum flokkanna. „Við tekur áframhaldandi vinna við málefnasamning sem stefnt er á að kynna 1. júni næstkomandi,“ segir í tilkynninguna frá Gunnari Líndal Sigurðssyni, Heimi Erni Árnasyni og Hlyn Jóhannssyni.
- Í fyrstu atrennu eftir kosningar ræddu fulltrúar L-lista, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar myndun sjö manna meirihluta en tveir þeir síðarnefndu slitu þeim viðræðum; sögðu ágreining um málefni of mikinn og að L-listinn hefði krafist of mikils.
- Næsta skref voru viðræður Framsóknar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Miðflokks. „Mikill samhljómur“ var á fyrsta fundi en svo fór að Samfylkingin sleit þeim viðræðum í gær. Ástæðan var „málefnalegur ágreiningur í fjölmörgum málum,“ eins og það var orðað í tilkynningu frá samfylkingunni.
Árangur flokkanna þriggja í kosningunum var sem hér segir:
- L-listi 1.705 atkvæði – 18,7% – 3 bæjarfulltrúar (var með 2)
- Sjálfstæðisflokkur 1.639 atkvæði – 18,0% – 2 bæjarfulltrúar (var með 3)
- Miðflokkur 716 atkvæði – 7,9% – 1 bæjarfulltrúi (var með 1)
Bæjarfulltrúar flokkanna þriggja, frá vinstri: Hlynur Jóhannsson (M), Halla Björk Reynisdóttir (L), Lára Halldóra Eiríksdóttir (D), Gunnar Líndal Sigurðsson (L), Elma Eysteinsdóttir (L) og Heimir Örn Árnason (D).