Kynna fjárfestingaátak vegna nýsköpunar
Nýsköpunarsjóður hefur nú hafið fjárfestingaátak fyrir félög sem eru komin stutt á veg í sinni þróun. Stefnt er að því að sjóðurinn fjárfesti allt að 200 milljónum króna á ári í átakinu; markmið þess er að koma að fjármögnun allt að 15 nýrra félaga á ári hverju, flýta mótunarskeiði félaganna, þróa hjá þeim trausta stjórnarhætti, búa þau undir aðkomu fjárfesta og laða samhliða fram nýja fjárfestingu einkafjárfesta.
Á morgun, miðvikudaginn 10. maí, verður Nýsköpunarsjóður með kynningarfund á Zoom þannig að allir landsmenn hafi tækifæri á að kynna sér átakið – sjá nánar hér.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarsjóði. Hlutverk hans er að stuðla að uppbyggingu og vexti íslensks atvinnulífs með fjárfestingum í sprotum og styðja við framgang nýsköpunar í samræmi við áherslur stjórnvalda, segir þar.
„Í stefnumótunarvinnu Nýsköpunarsjóðs haustið 2022 var lagt var mat á fjármögnunarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja og með hvaða hætti Nýsköpunarsjóður gæti orðið enn sterkara hreyfiafl fyrir nýsköpun á Íslandi. Sjóðurinn leggur áherslu á að fjárfesta í félögum snemma í þróunarferli þeirra og þar sem markaðsbrestur kallar eftir aðkomu sjóðsins. Sjóðurinn er þannig ekki í samkeppni við aðra fjárfesta heldur stuðlar að því að brúa bil sprotafyrirtækja og fjárfesta,“ segir í tilkynningunni.
„Markmið þessa fjárfestingaátaks er að koma að fjármögnun allt að 15 nýrra félaga á ári hverju, flýta mótunarskeiði þeirra, þróa trausta stjórnarhætti, og laða samhliða að aðra fjárfesta.“
Allt að 200 milljónum
„Stefnt er að því að sjóðurinn fjárfesti fyrir allt að 200 milljónum króna á ári með þessum hætti næstu árin. Fjármögnun átaksins byggir á eigin fjármögnun sjóðsins sem er sígrænn og framlagið því háð stöðu hans á hverjum tíma.
Fyrsti áfanginn í þessu átaki kemur til framkvæmda á nú í maí og júní með allt að 100 m.kr. fjárfestingu í nokkrum félögum. Fjárfest verður snemma í félögum, með einföldum hætti en eitt skilyrðanna er mótframlag hluthafa eða nýrra fjárfesta,“ segir í tilkynningunni.
„Það er skilyrði fyrir fjárfestingu að viðskiptahugmynd félags sé vænleg til vaxtar og útflutnings og byggi á tæknilegri eða markaðslegri nýsköpun. Þá er það til framdráttar að lykilteymi félagsins skipi fjölbreyttur hópur með bakgrunn, reynslu og þekkingu sem nýtist vel við framgang félagsins.
Fjárfesting sjóðsins í einstökum félögum verður á bilinu 5 – 25 m.kr., en gerð verður krafa um samsvarandi upphæð frá einkafjárfestum. Hægt verður að velja um tvær leiðir við framkvæmd fjárfestingarinnar, þ.e. með láni með breytirétti í hlutafé eða framvirkum samningi um kaup á hlutafé í anda SAFE samninga.“
- Ólíkt hefðbundnum fjárfestingum Nýsköpunarsjóðs verður í þessu átaki sérstakt umsóknarferli og þurfa félög að sækja um í þessum fyrsta áfanga fyrir 31. maí n.k. Allar nánari upplýsingar um átakið og umsóknarferlið má finna á heimasíðu Nýsköpunarsjóðs www.nyskopun.is/atak.