Fara í efni
Fréttir

Heilsutengd starfsemi í Kristnesi í 95 ár

Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit. Myndina málaði Freymóður Jóhannsson – sem notaði listamannsnafnið 12. september – árið 1927. Málarar sem máluðu húsið gáfu verkið og var Freymóður einn þeirra.

Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit á sér langa sögu. Upphaflega urðu berklarnir til þess að konur í Hjúkrunarfélaginu Hjálpinni í Saurbæjarhreppi beittu sér fyrir söfnun til byggingar heilsuhælis, hornsteinn að Kristneshæli var lagður 25. maí 1926 og hælið vígt 1. nóvember ári síðar. Í dag eru því 95 ár síðan starfsemi hófst þar.

Í tilefni afmælisins var fáni dreginn að húni og sjúklingum og starfsfólki Kristnesspítala boðið upp á köku. Spítalinn er í dag hluti Sjúkrahússins á Akureyri (SAk).

„Í dag er starfrækt 7 daga deild á 5. hæð Kristnesspítala, 5 daga eining á 3. og 4. hæð auk dagspítalaþjónustu innan öldrunar- og endurhæfingalækninga. Þjónustan er þverfagleg og lögð er áhersla á að meta heilsufar og færni sjúklinga, sjálfbjargargetu og þörf fyrir hjálpartæki. Farið er í heimilsathuganir og hugað að þörf fyrir þjónustu eftir útskrift,“ segir á vef SAk í dag. „Áhersla er á heilbrigðishvatningu, markmiðssetningu, meðferð, fræðslu og leiðsögn til sjúklinga og aðstandenda. Haldnir eru fjölskyldufundir og markvisst unnið með þjónustuaðilum utan SAk. Kjarni starfsins er þverfagleg teymisvinna sem byggir á samvinnu sjúklings, fjölskyldu og meðferðaraðila. Á Kristnesspítala fer fram einstaklingsmiðuð þjálfun í tækjasal, starfræktir eru göngu- og vatnsleikfimihópar, hjólahópar auk léttleikfimi og háls- og herðaleikfimi. Boðið er upp á hópmeðferð fyrir fólk með langvinna verki, ofþyngd, lungnasjúkdóma og í kjölfar krabbameinsmeðferða þar sem áhersla er á heildstæða nálgun og fræðslu. Þverfaglegt ökumatsteymi er starfrækt á Kristnesspítala auk göngudeildar endurhæfingalækninga.“

Fyrstu áratugina var rekið berklahæli í Kristnesi en í kringum 1960 hafði dregið verulega úr berklaveikinni þannig að berklasjúklingum fækkaði en hjúkrunarsjúklingum fjölgaði. Síðasti berklasjúklingurinn útskrifaðist í september 1976 og í framhaldi af því ákvað þáverandi heilbrigðisráðherra að gera Kristneshæli að hjúkrunar- og endurhæfingarspítala, að því er segir í frétt á vef SAk í tilefni 90 ára afmælis Kristnesspítala árið 2017. „Það ferli tók um 15 ár. Árið 1993 var rekstur Kristnesspítala sameinaður Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) – nú Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). Árið 1995 var starfsemin komin í það horf sem hún er í dag ...“