Kristján Þór gefur ekki kost á sér
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, verður ekki í framboði í alþingiskosningunum í haust. Þetta kemur fram í viðtali við Kristján Þór í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Kristján, sem verið hefur oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi síðan 2007, segist hafa tekið ákvörðunina að vel ígrunduðu máli. „Ég hef hugsað þetta og búinn að gera það upp við mig, að þetta sé orðið gott eftir 35 ára þjónustu í stjórnmálum og ætla því ekki að leita endurkjörs í haust,“ segir Kristján Þór í viðtalinu.
Hann segist þó ekki ætla að draga sig alfarið í hlé frá stjórnmálum, hann verði áfram virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins þótt hann verði ekki í flokksforystunni að þessu kjörtímabili loknu.
Kristján Þór var ráðinn bæjarstóri á Dalvík árið 1986, 29 ára að aldri, og á því að baki 35 ára feril í stjórnmálum. Hann varð bæjarstjóri á Ísafirði og síðan á Akureyri, þar til hann var kjörinn á Alþingi 2007, þar sem hann hefur setið síðan. Kristján varð ráðherra 2013 og hefur setið í öllum ríkisstjórnum síðan, fyrst heilbrigðisráðherra, þá mennta- og menningarmálaráðherra og loks sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.