Krabbameinsfélagið fær 300 þúsund frá Herði
Hörður Óskarsson færði Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis á dögunum styrk til minningar um bróður sinn Sigurð Viðar Óskarsson, sem lést úr krabbameini árið 2010. Þetta er fimmta árið í röð sem Hörður styrkir félagið.
„Hörður smíðar fallegt skart úr gamalli mynt sem hann selur undir merkjum Mynthringar og allskonar á Facebook," segir á vef Krabbameinsfélagsins. „Hann hefur smíðað slaufumen úr myntinni sem hafa fengið frábærar móttökur og hluti af ágóðanum rennur til félagsins. Í ár var styrkurinn frá Herði 300.000 þúsund krónur og kom hann og afhenti styrkinn á afmælisdegi bróður síns, 25. nóvember.“
Á vefnum er greint frá því að alls hafi Hörður fært félaginu rúmlega 1,3 milljónir króna. „Þeir sem hafa áhuga á að kaupa slaufu geta komið til okkar á skrifstofuna eða heyrt í Herði á facebook. Stjórn og starfsfólk Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis þakkar Herði kærlega fyrir stuðninginn í gegnum árin.“