Fréttir
Kóramessa og Hildur Eir sett í embætti
05.03.2023 kl. 06:00
Séra Hildur Eir Bolladóttir verður sett í embætti sóknarprests Akureyrarkirkju við messu sem hefst kl. 11.00 í dag. Um það embættisverk sér Jón Ármann Gíslason, prófastur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis.
Samkoma dagsins er að auki svokölluð Kóramessa. „Nær allir kirkjukórar Eyjafjarðar sameina þar krafta sína og syngja saman fjölbreytta og glæsilega kórtónlist,“ segir í tilkynningu. „Lögð verður áhersla á að flytja efni úr glænýrri sálmabók þjóðkirkjunnar en einnig þekkt verk eins og Hallelújakórinn eftir Händel.“
- Kirkjukór Laugalandsprestakalls
- Kór Möðruvallaklausturskirkju
- Kór Dalvíkurkirkju
- Kór Ólafsfjarðarkirkju
- Kór Laufás- og Grenivíkursóknar/Svalbarðskirkju
- Kór Glerárkirkju
- Kór Akureyrarkirkju
Stjórnendur og organistar:
- Ave Sillaots
- Petra Björk Pálsdóttir
- Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
- Páll Barna Szabó
- Valmar Väljaots
- Þorvaldur Örn Davíðsson
- Eyþór Ingi Jónsson