Fara í efni
Fréttir

KEA selur 5% hlut sinn í Samkaupum

KEA hefur selt allt hlutafé sitt í Eignarhaldsfélaginu Bjarma ehf. en það félag hefur haldið utan um 5% eignarhlut í matvörukeðjunni Samkaup hf. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KEA.

„KEA hefur átt þennan eignarhlut í að verða 10 ár. KEA fékk tilboð í hlut sinn frá SKEL fjárfestingafélagi sem það taldi sig ekki getað hafnað. KEA er að einfalda eignasafn sitt í samræmi við þá stefnu að fækka en um leið að stækka þau verkefni sem félagið er með á efnahagsreikningi sínum,“ segir í tilkynningunni.

Samkaup rekur fjölda verslana víða um land, m.a. fjórar á Akureyri; Nettó á Glerártorgi og við Hrísalaund, svo og Krambúðina við Byggðaveg og Borgarbraut.