Fara í efni
Fréttir

Kaupfélag Skagfirðinga kaupir Kjarnafæði Norðlenska

Hluthafar Kjarnafæði Norðlenska hf. (KN) hafa samþykkt tilboð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) um kaup á allt að 100% hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska hf. Starfsmönnum KN verður tilkynnt um viðskiptin á morgun.

Vikublaðið greindi fyrst frá tíðindunum í kvöld en KN sendi síðan frá sér fréttatilkynningu.

Kjarnafæði Norðlenska er stærsta kjötvinnslufyrirtæki landsins.

Eigendur KN eru bræðurnir Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir, sem eiga 28% hvor, og Búsæld ehf., félag bænda, sem er eigandi rúmlega 43% hlutafjár. Bræðurnir hafa báðir ákveðið að selja allan sinn hlut en hver og einn félagi í Búsæld ákveður hvort hann selur.

Hagkvæmni og lækkun kostnaðar

Meginmarkmið viðskiptanna er að auka hagkvæmni, lækka kostnað við slátrun og úrvinnslu kjötafurða og auka þannig skilvirkni og samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu bændum og neytendum til hagsbóta, að því er segir í tilkynningu frá Kjarnafæði Norðlenska.

„Í kjölfar nýlegra breytinga á lögum hefur kjötgreinum á Íslandi verið gert mögulegt að hagræða á sama hátt og þekkist í öðrum löndum,“ segir Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Kjarnafæðis Norðlenska.

Auka hagsæld bænda og neytenda

„Þessi viðskipti eru rökrétt framhald af þessum breytingum og líkleg til að auka hagsæld bænda og neytenda enda er verið að bæta samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu með því að gera verulega hagræðingu mögulega. Nú er það verkefni starfsfólks félaganna að raungera þessa hagræðingarmöguleika íslenskum landbúnaði og neytendum til heilla,“ segir forstjórinn.

KN og forverar þess eru gamalgróin fyrirtæki í slátrun og vinnslu kjötafurða á Norður- og Austurlandi. Í dag rekur félagið sláturhús og kjötvinnslustöðvar á Húsavík, Svalbarðseyri, Akureyri og Blönduósi. KS er í samskonar starfsemi á Sauðárkróki, Hvammstanga, Reykjavík og Hellu.

Eðlilegt framhald

„Hefðbundinn landbúnaður skipar stórar sess í búsetu og atvinnulífi á starfssvæðum félaganna. Því er mikilvægt að skapa sem traustasta umgjörð um atvinnugreinina og styrkja búsetu og atvinnumál í sveitum landsins,“ segir í tilkynningunni.

Viðskiptin eru möguleg vegna nýrra laga sem heimila framleiðendafélögum að sameinast og hafa með sér verkaskiptingu, eins og áður er vikið að. „Eftir setningu laganna hafa margir bændur kallað eftir frekari hagræðingu í greininni en möguleg samlegðaráhrif Kaupfélag Skagfirðinga og Kjarnafæði Norðlenska við slátrun og úrvinnslu kjötafurða eru líklega þau mestu í íslenskum landbúnaði og viðskiptin því eðlilegt framhald lagasetningarinnar. Það verður því í höndum þessara tveggja félaga bænda að vinna úr þeim ef viðskiptin verða að veruleika,“ segir í tilkynningunni.