Fara í efni
Fréttir

Kaupa nær allan hlut KEA í Tækifæri

Sjóböðin á Húsavík. Mynd af vef Markaðsstofu Norðurlands.

Hópur fjárfesta, sem Steingrímur Birgisson framkvæmdastjóri Hölds á Akureyri fer fyrir, hefur keypt ríflega 67% í fjárfestingasjóðnum Tækifæri hf. af KEA, sem átti tæplega 73% í sjóðnum. Stærstu eignir Tækifæris hf. eru 44% eignarhlutur í Jarðböðunum í Mývatnssveit og 35% hlutur í Sjóböðunum á Húsavík. Kaupverð hefur ekki verið gefið upp.

Gert er ráð fyrir breytingum á starfsemi Tækifæris hf. ef viðskiptin ganga í gegn, en þau eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Stefnt er að því að sjóðurinn verði að eignarhaldsfélagi um eignarhluti í Jarðböðunum og Sjóböðunum.

KEA hefur um nokkurt skeið verið lang stærsti hluthafi Tækifæris, sem hefur allt frá árinu 1998 einbeitt sér að fjárfestingum í nýsköpunarverkefnum á Norðurlandi, segir á heimasíðu KEA.

Getum nýtt tækifæri í ferðamennsku enn betur

Auk Steingríms Birgissonar eru það Íslenskar heilsulindir, dótturfélag Bláa Lónsins, og Kjálkanes sem koma inn í hluthafahóp Tækifæris. Kjálkanes er félag í eigenda útgerðarfélagsins Gjögurs á Grenvík.

„Ég hef setið í stjórn Jarðbaðanna og þekki vel til starfseminnar. Það hefur blundað í mér að ef tækifæri gæfist á aukinni aðkomu Hölds að þessum rekstri þá væri það gaman. Þarna er frábært starfsfólk að vinna góða vinnu og ég tel að með örlítið breyttum áherslum sé hægt að gera enn betur. Núna gafst tækifærið og með sterka aðila með Höldi í kaupendahópnum sem eru Íslenskar heilsulindir og Kjálkanes er ég viss um að við getum nýtt enn betur þau tækifæri sem fyrir okkur liggja í ferðamennsku á svæðinu,“ er haft eftir Steingrími Birgissyni í tilkynningu.

Boð sem við gátum ekki hafnað

Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA segir aðkomu KEA að nýsköpunarverkefnum á félagssvæði sínu fjarri því lokið með þessari sölu og muni í kjölfar viðskiptanna fara fram eftir öðrum leiðum en áður þar sem tilgangi Tækifæris verður breytt í kjölfar viðskiptanna. „Hver veit nema að þetta leiði fram frekari og ný tækifæri en það mun allt koma í ljós síðar. Við fengum boð í þennan eignarhlut sem við töldum okkur ekki geta hafnað. Tækifæri hf. er sjóður sem er að fullu fjárfestur og hefur á liðnum árum m.a. komið að uppbyggingu baðstaða með árangursríkum hætti og er henni í reynd lokið enda þau verkefni orðin að þroskuðum fyrirtækjum og starfsemi þeirra þess eðlis að þau halda umsvifum sínum óháð eignarhaldi,“ er haft eftir Halldóri á vef KEA.

Meðal annarra hluthafa sem áfram verða í hluthafahópi Tækifæris hf. eru Stapi lífeyrissjóður og Íslensk verðbréf.