Fara í efni
Fréttir

Jón Bjarnason úrsmiður er látinn

Jón Bjarnason úrsmiður á Akureyri er látinn. Jón fæddist 26. janúar 1936 í Reykjavík og lést á Akureyri síðastliðinn mánudag, 24. júní, á 89. aldursári.

Eiginkona Jóns er Sigrún Helgadóttir, fædd 8. mars 1936, húsmóðir og skrifstofumaður. Þau gengu í hjónaband 1957.

Börn Jóns og Sigrúnar eru þrjú: 1) Sif, fædd 1959, líffræðingur, búsett í Reykjavík; 2) Ólöf, fædd 1962, fiðlukennari, búsett í Milwaukee í Bandaríkjunum. Maki: Þorsteinn Skúlason húðsjúkdómalæknir. Börn: Sæunn, f. 1984, og Skúli, f. 1991; 3) Bjarni, f. 31.5. 1965, úrsmiður á Akureyri. Maki: Soffía Einarsdóttir, f. 1972, sjúkraþjálfari. Börn: Jón Oddur, f. 1991, Einar Breki, f. 1995, Brynja Marín, f. 2001, og Katla, f. 2007.

Foreldrar Jóns voru hjónin Bjarni Jónsson, f. 30.8. 1900, d. 7.5. 1980, úrsmiður á Akureyri, og Ólöf Guðmundsdóttir, f. 17.10. 1912, 30.10. 1990, húsfreyja og verkakona á Akureyri.

Systkini Jóns: Guðmundur Bjarnason, f. 1937, d. 1946; Pétur Bjarnason, f. 1939, d. 1976, verkfræðingur og hafnarstjóri á Akureyri; Kristófer Bjarnason, f. 1942, d. 1946; Stefán Bjarnason, f. 1945, d. 2023, úrsmiður í Kópavogi; Guðmundur Bjarnason, f. 1948, d. 1959; Kristófer Bjarnason, f. 1948, d. 1959.

Jón lauk prófi í úrsmíði 1956 og hélt ári síðar til Bienne í Sviss í framhaldsnám í greininni. Hann starfaði fyrst á úrsmíðaverkstæði föður síns, Bjarna Jónssonar frá Gröf, en opnaði eigið úrsmíðaverkstæði og verslun árið 1961.

Jón starfaði mikið að félagsmálum og var viðloðandi íþróttir alla tíð. Hann starfaði mikið við íþróttir, t.d. við tímatökur á mótum, skíðum og frjálsum íþróttum. Hann stundaði m.a. skíði, handbolta, fótbolta, badminton og blak fram á seinni ár.

Jón var gjaldkeri í stjórn Íþróttafélagsins Þórs um tíma og starfaði innan Oddfellow-reglunnar í liðlega 60 ár.

Útför Jóns Bjarnasonar verður frá Akureyrarkirkju föstudaginn 12. júlí kl. 13.00.