Fara í efni
Fréttir

Jakob Frímann ekki á lista Flokks fólksins

Jakob Frímann Magnússon fagnar úrslitum kosninganna 2021 þegar hann var kjörinn á Alþingi. Hann verður ekki í framboði nú. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Jakob Frímann Magnússon alþingismaður og oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi verður ekki á lista flokksins við kosningarnar til Alþingis 30. nóvember næstkomandi. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gærkvöldi.

RÚV vitnar í yfirlýsingu Jakobs Frímanns, þar sem hann segist „stoltur á þessum tímapunkti enda sýni nýleg Gallup könnun að undir hans forystu hafi fylgi flokksins þrefaldast á Norðurlandi eystra og sé hvergi meira á landinu.“

Jakob segir í yfirlýsingu, að því er kemur fram á vef RÚV, að aðskilnaðurinn eigi sér aðdraganda „þar sem komi meðal annars við sögu ólík sýn á leikreglur, hreinskiptni og traust. Hann þakkar öllu því góða fólki sem hann hefur átt uppbyggilegt samstarf við í þingmennsku sinni og kveðst hlakka til að láta til sín taka á nýjum vettvangi þar sem hann haldi áfram að berjast ótrauður fyrir bættum hag þeirra sem minna mega sín.“