Fara í efni
Fréttir

Innilega til hamingju með daginn, sjómenn!

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Í tilefni sjómannadagsins, sem er í dag, er ýmislegt í boði á Akureyri um helgina. Í gær var til dæmis dagskrá í Sandgerðisbót og sigling með Húna II, þar sem þeirra var minnst sem farist hafa á hafi úti.

DAGSKRÁIN Í DAG

AKUREYRI

08.00 Fánadagur
Bæjarbúar draga fána að hún.

11.00 Sjómannadagsguðsþjónusta
Messa í Akureyrarkirkju með þátttöku sjómanna.
Að athöfn lokinni í Akureyrarkirkju verður blómsveigur frá sjómönnum lagður að minnismerki við Akureyrarkirkjugarð á Naustahöfða.

12.00 - 18.00 Sjómennska, sviti og salt
Gluggainnsetning júnímánaðar í Hafnarstræti 88, vinnustofu Brynju, nefnist Sjómennska, sviti og salt og er helguð sjómennsku eins og nafnið gefur til kynna. Um gluggasýningu er að ræða og er því aðgengileg allan sólarhringinn. Sjá nánar hér

13.30 Hópsigling smábáta og Húni II
Brottför frá Sandgerðisbót kl. 13.30. Húni siglir með bæjarbúa frá Fiskihöfn (austan við Hagkaup) í hópsiglingu smábáta, selgskúta og sjóbretta.
Allir velkomnir! Ef þörf er á verður einnig boðið upp á fleiri siglingar með Húna (kl. 14.15 og 15.15)

11.00 - 15.00 Siglingaklúbburinn Nökkvi
Opið hús í félagsaðstöðu klúbbsins við Höpfnerbryggju.

GRÍMSEY

14.00 Tónleikar
Karlakór Eyjafjarðar í félagsheilmilinu Múla.

15.00 Sjómannadagskaffisala
Í félagsheimilinu Múla, selt inn við inngang.

HRÍSEY

10.00 Sigling
Allir bátaeigendur hvattir til að taka þátt.

11.11 Sjómannadagsmessa
Hríseyjarkirkja. Sjómaður heiðraður.

12.00 Ferjumenn grilla pylsur á svæðinu
Tæki björgunarsveitar og slökkviliðs til sýnis.

13.00 Leikir og sprell á væðinu og við smábátahöfnina

15.00 Kaffisala í Íþróttamiðstöðinni

16.00 Sigling fyrir börnin á björgunarbátnum Kidda

Sjá nánar á heimasíðu Hríseyjar www.hrisey.is