Fara í efni
Fréttir

Innflytjendur og íslensk tunga

Hvað erum við að gera hér á Akureyri til að auka færni innflytjenda í íslensku? 

Hvað getum við gert betur? Hvernig?

Þannig spyr AkureyrarAkademían (AkAk) – og heldur málþing í menningarhúsinu Hofi á laugardaginn.

„Markmið málþingsins er að hefja samtalið um það sem verið er að gera hér í bænum til að auka færni innflytjenda í íslensku og gera þeim kleift að taka virkan þátt í samfélaginu,“ segir í tilkynningu frá AkAk.

Málþingsstjóri er Valgerður H. Bjarnadóttir, félagi í AkureyrarAkademíunni og sjálfstætt starfandi fræðikona.

Dagskrá

14:00 – Setning. Sigurgeir Guðjónsson, formaður stjórnar AkureyrarAkademíunnar.

14:10 – Inngangserindi. Samfélag fjölbreytileikans á Íslandi – áskoranir og tækifæri. Dr. Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor í Háskólanum á Akureyri.

  • Í erindinu verður stiklað á stóru um valdar niðurstöður úr rannsóknarverkefninu Samfélag fjölbreytileikans – Samskipti heimamanna og innflytjenda á Íslandi sem stóð yfir árin 2018-2021 og miðaði að því að bera saman aðlögunarmynstur innflytjenda í sveitarfélögum víðs vegar um landið með það að markmiði að fá innsýn í stöðu innflytjenda í íslensku samfélagi. Áhersla var lögð á þætti er varða tungumál, atvinnu, menntun, menningu og hamingju. Fjallað verður um valdar niðurstöður rannsóknarinnar.

14:30Hvað er verið að gera í fræðslukerfinu og hjá aðilum vinnumarkaðarins hér á Akureyri til að auka færni innflytjenda í íslensku?

Frummælendur:

  • Ingibjörg Margrét Magnúsdóttir, kennsluráðgjafi barna með íslensku sem annað mál Fræðslu- og lýðheilsusviði Akureyrarbæjar.
  • Kristín Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri/ráðgjafi Símey.
  • Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju.
  • Jóna Jónsdóttir, starfsmannastjóri og fulltrúi Samtaka atvinnulífsins í Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

15:20Hver er reynsla innflytjenda? Pallborðsumræður I.

Þátttakendur:

  • Ahmed Essabiani, viðskiptafræðingur, menningarmiðlari, fyrirlesari og túlkur.
  • Erwin van der Werve, myndlistamaður, leiðsögumaður og skíðakennari.
  • Fayrouz Nouh, doktorsnemi og fjölmenningarfulltrúi í Giljaskóla.
  • Lara W. Hoffmann, doktorsnemi, háskólakennari og verkefnastjóri.
  • Magdalena Þórarinsdóttir, samfélagstúlkur.

16:00 – Kaffihlé.

16:30Viðbrögð við því sem áður er komið fram, mat á stöðunni á Akureyri og horft fram á veginn.

Pallborðsumræður II.

Þátttakendur:

  • Frummælendur frá fræðslukerfinu og aðilum vinnumarkaðarins á Akureyri.
  • Halla Björk Reynisdóttir, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar.
  • Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, verkefnastjóri ÍSAT (íslenska sem annað tungumál) í Síðuskóla.

Pallborðsumræðum stýra Auður H. Ingólfsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, og Finnur Friðriksson, málfræðingur og dósent Háskólanum á Akureyri.

17:00 – Málþingsslit.

Málþingið verður tekið upp og upptakan gerð aðgengileg á miðlum AkureyrarAkademíunnar.

Málþingið er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar í tilefni af 160 ára afmæli Akureyrarbæjar. Markmiðið með viðburðunum er að auka framboð á fjölbreyttu og aðgengilegu efni um sögu og menningarlíf á Akureyri og að virkja almenning til þátttöku. Menningarsjóður Akureyrar styrkir viðburðina.

Öll eru velkomin og aðgangur er ókeypis.