Indriði Úlfsson fv. skólastjóri látinn
Indriði Úlfsson, rithöfundur og fyrrverandi skólastjóri er látinn á 91. aldursári. Indriði var fæddur 3. júní 1932 á Héðinshöfða á Tjörnesi og lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 7. febrúar síðastliðinn.
Eiginkona Indriða er Helga Þórólfsdóttir, fædd 29. janúar 1939. Börn þeirra eru Úlfar Þór, hagfræðingur fæddur 1959, dáinn 2017, og Ingunn Líney, hjúkrunarfræðingur fædd 1962.
Foreldrar Indriða voru Líney Björnsdóttir húsmóðir og Úlfur Indriðason bóndi, hreppstjóri og oddviti.
Indriði lauk kennaraprófi frá KÍ 1953. Hann kenndi um tíma í Tjörneshreppi og á Húsavík, hóf að kenna við Barnaskóla Akureyrar 1956 og varð yfirkennari þar 1964. Indriði var ráðinn skólastjóri við Oddeyrarskóla á Akureyri um miðjan sjöunda áratuginn og gegndi því starfi til 1995.
Indriði er höfundur fjölda barna- og unglingabóka, sem komu út á árunum 1967 til 1988. Þá var hann sýningarmaður í Borgarbíói á Akureyri í þrjá áratugi, frá 1957 til 1987.
Útför Indriða verður frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 18. febrúar.