Iðnaðarsafnið verður opið áfram
Nú er orðið ljóst að Iðnaðarsafninu á Akureyri verður ekki lokað um mánaðamótin eins og aðstandendur safnsins óttuðust. Þetta var tilkynnt á Facebook síðu safnsins í dag.
„Akureyrarbær hefur ákveðið að koma með fjármagn til þess að safnið verði áfram opið, allar götur fram á haustið, og því mun nú strax á morgun taka í gildi nýr opnunartími,“ segir þar.
Frá og með morgundeginum, 1. mars, verður safnið opið alla sjö daga vikunnar frá kl 13.00 til kl 16.00 og í vor verður svo auglýst hvenær safnið verður opið gestum í sumar.
„Áfram munum við vinna að framgangi safnastefnu Akureyrar 2022-2026 sem gerir ráð fyrir viðræðum stjórna Iðnaðarsafnsins og Minjasafnsins um aukna samvinnu og eða samruna safnanna.
Akureyrarbær hefur skipað Þórgný Dýrfjörð fulltrúa sinn til að stýra þessum væntanlegu viðræðum safnanna,“ segir í tilkynningu Iðnaðarsafnsins.
„Þessi niðurstaða er okkur mikið fagnaðarefni og viljum við koma þökkum okkar beint á framfæri við bæjaryfirvöld og einnig allra þeirra sem við vitum að hafa sent okkur stuðning og góðan hug í símtölum, heimsóknum og fallegum kveðjum.
Ennfremur ætlum við að setja strax í gang undirbúning að sýningum sumarsins og þess má geta að við munum koma að hátíðarhöldum sjómannadagsins eins og á síðasta ári.“
Í tilkynningu safnsins segir að í dag sé ástæða til að gleðjast, þakka og ganga bjartsýnn til nýrra tíma.
„Hollvinir Iðnaðarsafnisns munu bjóða í hollvinakaffi á föstudaginn 3. mars. kl 10.00. Allir velunnarar Iðnaðarsafnsins eru hjartanlega velkomnir.“