Sjáðu hvað breytist í starfi skólanna
Vegna þess hversu góð tök hafa náðst á kórónuveirufaraldrinum hér á landi tekur ný reglugerð heilbrigðisráðherra gildi á morgun. Mestu breytingarnar á starfi skóla felast í afnámi tveggja metra reglunnar á öllum skólastigum og því að 150 nemendur mega vera í sama rými í framhalds- og háskólum; sú fjöldatakmörkun tekur að vísu ekki gildi fyrr en um mánaðamótin.
Líkt og verið hefur gilda engar fjöldatakmarkanir um nemendur í leikskólum, þeir eru undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun. Í grunnskólum verður heimilt að hafa 150 nemendur í hverju rými en líkt og áður eru nemendur í 1. til 10. bekk undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun.
Viðburðir tengdir félagsstarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum og í tónlistarskólum verða heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda og nálægðartakmörkunum sem gilda á viðkomandi skólastigi.
Vert er að benda á að reglur tónlistarskóla taka mið af sambærilegum skólastigum.
Helstu breytingar í nýrri reglugerð eru eftirfarandi:
Leikskólastig
- Leikskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með eins metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé það ekki unnt ber að nota andlitsgrímur.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 fullorðnir í hverju rými.
- Foreldrar, aðstandendur og aðrir skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingu og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst eins metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín og gagnvart starfsfólki.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi leikskóla, svo sem leiksýningar og tónleikar, eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum. Fari hámarksfjöldi fullorðinna yfir 50 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.
Grunnskólastig
- Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með eins metra nálægðartakmörkum milli starfsfólks. Sé það ekki unnt ber að nota andlitsgrímur.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými. Þetta á einnig við um frístundaheimili, skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf, sem og starfsemi í félagsmiðstöðvum.
- Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkunum og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 150 nemendur í hverju rými innan dyra.
- Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingu og gæta að sóttvörnum. Þeir skulu gæta að minnst eins metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín og gagnvart starfsfólki.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppni og fleira, eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum. Fari hámarksfjöldi fullorðinna yfir 50 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.
Framhaldsskólastig
- Skólastarf á framhaldsskólastigi, í lýðskólum, ungmennahúsum og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst eins metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir 150 í hverju rými.
- Sé ekki unnt að halda eins metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi framhaldsskóla, svo sem fyrirlestrar, ræðukeppni og fleira, eru heimilir í skólabyggingum með áðurnefndum fjölda- og nálægðartakmörkunum. Fari hámarksfjöldi yfir 150 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.
Háskólastig
- Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst eins metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverju kennslu- eða lesrými fari ekki yfir 150. Sé ekki unnt að halda eins metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.
- Ekki skulu vera fleiri en 50 starfsmenn í hverju rými.
- Blöndun nemenda og kennara milli hópa er heimil.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi háskóla eru heimilir í skólabyggingum. Fari hámarksfjöldi fullorðinna yfir 50 gilda reglur um samkomutakmarkanir samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum.