Hreiðar Jónsson er látinn
Hreiðar Jónsson, fyrrverandi starfsmaður á íþróttavellinum á Akureyri, frjálsíþróttamaður og þjálfari, er látinn á 90. aldursári. Hreiðar fæddist á Akureyri 23. nóvember 1933 og lést á Akureyri 28. apríl sl.
Eiginkona Hreiðars var Hrafnhildur Ingólfsdóttir, sjúkraliði, sem lést 2019. Börn þeirra eru Ingólfur Hreiðarsson f. 1958, giftur Svanborgu Ísberg, og Hadda Hreiðarsdóttir f. 1978. Barnabörn Hreiðars eru sex og hann á einn langafastrák.
Foreldrar Hreiðars voru Jón Kristján Hólm Ingimarsson, formaður Iðju, félags verksmiðjufólks um áratuga skeið, og Gefn Jóhanna Geirdal Steinólfsdóttir. Systkin hans eru Ingimar Jónsson, Hólmfríður Geirdal, Saga Geirdal Jónsdóttir, Halla María Jónsdóttir (látin) og Hekla Geirdal (látin).
Hreiðar vann ýmis störf sem ungur maður en lungann úr starfsævinni var hann vallarvörður á Akureyrarvelli á sumrin og vann í Íþróttaskemmunni á veturna. Hann var afreksmaður í frjálsíþróttum með KA á yngri árum, varð Íslandsmeistari og átti Íslandsmet í millivegalengdahlaupum, og eftir keppnisferilinn þjálfaði Hreiðar frjálsíþróttafólk í fjöldamörg ár. Hreiðar var einnig handboltaþjálfari um nokkurra ára skeið og var m.a. þjálfari meistaraflokks Þórs þegar liðið komst í fyrsta skipti upp í efstu deild árið 1972, fyrst Akureyrarliða.
Hreiðar sat í Íþróttaráði Akureyrarbæjar fyrir hönd Alþýðubandalagsins á árunum 1978 til 1986. Hann var í byggingarnefnd KA-heimilisins sem tekið var í notkun 1986. Árið 2021 hlaut hann heiðursviðurkenningu frístundaráðs Akureyrar fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu íþrótta og heilsueflingar.