Hönnuðu kælibúnað fyrir lax og settu upp
„Þetta var í senn mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni,“ segir Bjartmar E. Harðarson, verkefnastjóri hjá Kælismiðjunni Frosti, um kælibúnað sem fyrirtækið hannaði og setti upp í Drimlu, laxavinnslu Arctic Fish í Bolungarvík. Drimla var formlega tekin í notkun 25. nóvember en vinnsla hófst þar í sumar.
Verksamningar milli Frost og Arctic Fish voru undirritaðir á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2022 í Kópavogi. Hönnun hófst síðla sumars það ár og síðan hófst forsmíði búnaðarins á verkstæði Frosts. Í febrúar á þessu ári hófust starfsmenn Frosts síðan handa í Bolungarvík. Verkinu var að mestu lokið sl. sumar en lokafrágangur og fínstilling kerfsins var núna á haustdögum.
„Þetta verk fól í sér heildarlausn sem Frost hannaði. Það fól annars vegar í sér ammoníak/glykol sem er notað til kælingar á sjó. Sjórinn er notaður til þess að undirkæla laxinn. Hins vegar er það ísverksmiðja til framleiðslu á skelís og ísafgreiðslukerfi sem notað er til þess að ísa afurðir verksmiðjunnar fyrir flutning. Tvær kælipressur eru á staðnum sem vinna á sitt hvoru kerfinu en hafa þó sameiginlega háþrýstihlið. Kerfið er tilbúið til endurnýtingar á varma sem nýttur verður til upphitunar á verksmiðjunni í framtíðinni,“ segir Bjartmar í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Gólfflötur þessarar nýju laxavinnslu Arctic Fish á hafnarsvæðinu í Bolungarvík er um 5000 fermetrar og er framleiðslugetan þar um 15 tonn af laxi á klukkustund.
Kælismiðjan Frost hannaði heildarlausn í kælingu laxafurða Drimlu og ísafgreiðslukerfi fyrir flutning á vörunni á markaði erlendis.