Fréttir
Hólfaskipt í fjallinu vegna Covid ástands
11.01.2022 kl. 13:30
Hlíðarfjall á fallegum degi. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Tilkynnt hefur verið um breytt fyrirkomulag á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu vegna Covid-19.
„Sökum fjölda smita vegna Covid-19 undanfarna daga höfum við ákveðið að skipta föstudögum, laugardögum og sunnudögum upp í hólf eða fyrri og seinnipart og lengja opnunartíma á þessum dögum. Vetrarkorsthafar eru undanskildir tímapöntunum og geta komið þegar þeim hentar,“ segir í tilkynningu á vef skíðasvæðisins.
- Á föstudögum verður opið frá klukkan 11.00 til 19.00 – fyrra hólf verður frá kl. 11.00 til 14.30 og seinna frá klukkan 15.00 til 19.00.
- Á laugardögum og sunnudögum verður opið frá kl. 09.30 til 17.00 – fyrra hólf frá kl. 09.30 til 13.00 og það seinna frá kl. 13.30 til 17.00.
- Lyftumiðar fyrir þessa þrjá daga verða settir í sölu klukkan 15.00 á miðvikudögum.
- Fyrir þessa daga þarf að kaupa lyftumiðana og vasakort; hvort tveggja er selt á heimasíðu Hlíðarfjalls. Auk þess eru vasakortin seld hjá N1 á Akureyri, í Leirunesti og Veganesti.
- Grímuskylda er innandyra og í röðum utandyra
Þess má geta að lokað er í dag í Hlíðarfjalli vegna veðurs.