Fara í efni
Fréttir

Höfnuðu eina tilboðinu í frístundaakstur

Aðeins eitt tilboð barst í frístundaakstur fyrir nemendur 1. til 4. bekkja grunnskóla Akureyrarbæjar í vetur en því var hafnað. Tilboðið var umtalsvert hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir og frístundaráð ákvað á fundi í gær að hafna því.

Samfélagssvið Akureyrarbæjar óskaði nýlega eftir tilboðum í frístundaakstur fyrir tímabilið 6. september í ár til 3. júní næst vor. Hugmyndin var að börnum á yngsta stigi yrði ekið úr skólum og á æfingar og í tómstundir á milli klukkan 13 og 16 á virkum dögum. Ákvörðunin var liður í stefnu bæjarins um samfellu í skóla- og frístundastarfi og kæmi frístundaaksturinn í staðinn fyrir rútuferðir sem einstök íþróttafélög hafa haldið utan um fyrir iðkendur í einstökum greinum.

Í ljósi þess að ekkert fullnægjandi tilboð barst verður leiða leitað til að útfæra frístundaaksturinn með öðrum hætti, skv. upplýsingum frá Akureyrarbæ. Samtal við íþróttafélög bæjarins er hafið og verður nánar upplýst um næstu skref þegar þau liggja fyrir. Hins vegar liggur fyrir að frístundaaksturinn fer ekki af stað í næstu viku eins og að var stefnt.