Fréttir
Hildur Eir sett í embætti í kóramessu
05.03.2023 kl. 12:50
Séra Hildur Eir Bolladóttir í predikunarstól Akureyrarkirkju eftir að hún var sett í embætti í morgun. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson
Séra Hildur Eir Bolladóttir var sett í embætti sóknarprests Akureyrarkirkju við messu í morgun af séra Jóni Ármanni Gíslasyni, prófasti Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis.
Samkoma dagsins var að auki svokölluð Kóramessa. Nær allir kirkjukórar Eyjafjarðar sameinuðu þar krafta sína og sungu saman fjölbreytta og fallega kórtónlist. Lögð var áhersla á að flytja efni úr glænýrri sálmabók þjóðkirkjunnar en einnig þekkt verk eins og Hallelújakórinn eftir Händel. Þegar allir kórarnir sungu saman það kröftuga, yndislega verk fyllti Händel hvern krók og kima í kirkjunni.
- Kirkjukór Laugalandsprestakalls
- Kór Möðruvallaklausturskirkju
- Kór Dalvíkurkirkju
- Kór Ólafsfjarðarkirkju
- Kór Laufás- og Grenivíkursóknar/Svalbarðskirkju
- Kór Glerárkirkju
- Kór Akureyrarkirkju
Stjórnendur og organistar:
- Ave Sillaots
- Petra Björk Pálsdóttir
- Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
- Páll Barna Szabó
- Valmar Väljaots
- Þorvaldur Örn Davíðsson
- Eyþór Ingi Jónsson