Fréttir
Heimir nýr oddviti sjálfstæðismanna
26.03.2022 kl. 21:33
Heimir Örn Árnason, deildarstjóri í Naustaskóla og handboltaþjálfari, er nýr oddviti sjálfstæðismanna á Akureyri. Hann sigraði í dag í prófkjöri þar sem kosið var um fjögur efstu sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 14. maí. Heimir er nýliði í stjórnmálum.
Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi, sem lenti í þriðja sæti, gaf einnig kost á sér í oddvitasætið.
Sex voru í framboði og niðurstaðan varð þessi:
- Heimir Örn Árnason 388 atkvæði í 1. sæti
- Lára Halldóra Eiríksdóttir með 387 atkvæði í 1.-2. sæti
- Þórhallur Jónsson með 412 atkvæði í 1.-3. sæti
- Hildur Brynjarsdóttir með 481 atkvæði í 1.-4.sæti
Að auki Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri kost á sér í 1. -2. sæti og Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri og varabæjarfulltrúi, í 4. sæti.
- 737 greiddu atkvæði sem er 33% kjörsókn því 2.240 voru á kjörskrá. 20 seðlar voru auðir eða ógildir.