Fréttir
Heimir forseti, L-listi stýrir bæjarráði
01.06.2022 kl. 18:01
Heimir Örn Árnason, til vinstri, og Gunnar Líndal Sigurðsson voru í sólskinsskapi í Lystigarðinum í dag. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður forseti bæjarstjórnar Akureyrar allt kjörtímabilið. Halla Björk Reynisdóttir, L-lista, verður formaður bæjarráðs til næstu áramóta en þá tekur Gunnar Líndal Sigurðsson, oddviti L-listans, við embættinu og gegnir því út kjörtímabilið.
Tilkynnt var í dag hvaða flokkar fá formennsku í stjórnum og ráðum. Ekki var tilkynnt hverjir það verða en Akureyri.net veit eftirfarandi:
- Forseti bæjarstjórnar – Sjálfstæðisflokkurinn – Heimir Örn Árnason
- Formaður bæjaráðs – L-listinn – Halla Björk Reynisdóttir (til áramóta), Gunnar Líndal Sigurðsson
- Fræðslu- og lýðheilsuráð – Sjálfstæðisflokkurinn – Heimir Örn Árnason
- Skipulagsráð – L-listinn – Halla Björk Reynisdóttir. Varaformaður verður Þórhallur Jónsson, Sjálfstæðisflokki, sem verið hefur formaður skipulagsráðs síðustu misseri
- Umhverfis- og mannvirkjaráð – L-listinn
- Velferðarráð – L-listinn
- Formennska í stjórn SSNE - Sjálfstæðisflokkur
- Formennska í stjórn Norðurorku – Miðflokkurinn – Hlynur Jóhannsson
- Formennska í stjórn Hafnarsamlags Norðurlands - Miðflokkurinn – Inga Dís Sigurðardóttir