Hægt að tilnefna til viðurkenninga FKA
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir viðurkenningarhátíð Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Viðurkenningarhátíð FKA er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Að vanda verða veittar viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd.
„Félag kvenna í atvinnulífinu heldur markvisst áfram að skrifa konur inní söguna,“ segir í tilkynningunni. „Hvaða þrjár konur verða heiðraðar og valdar úr hópi tilnefndra kvenna kemur í ljós á næstu FKA Viðurkenningarhátíð FKA á Grand Hótel þann 26. janúar 2023, þá mun koma í ljós hvaða konur hljóta FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2023.“
FKA óskar eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu sem dómnefnd mun meta og á endanum velja konur sem hljóta viðurkenningarnar.
Hægt er að tilnefna konur í öllum flokkum eða bara eina til og með 24. nóvember 2022. Smellið hér til að tilnefna.