Fara í efni
Fréttir

Grís í óskilum!

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Samsett mynd.

Verkefni lögreglunnar eru margvísleg, en líklega ekki oft sem handsama þarf grísi sem ganga lausir. Það kom þó í hlut lögreglumanna á vakt núna rétt áðan birtist tilkynning á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra að gefnu tilefni eftir að tilkynnt var um grís sem ráfaði um garð í Kjarnagötunni.

Lögreglan óskar eftir upplýsingum um hver mögulegur eigandi dýrsins gæti verið og er fólk beðið um að hafa samband við viðkomandi og lögregluna í síma 112, ef það býr yfir slíkri vitneskju. 

Uppfærð frétt.

Skömmu eftir að Akureyri.net birti fréttina hafði lögreglan handsamað grísinn og sett meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sína í þeirri von að lesendur kannist við svipinn.