Fara í efni
Fréttir

Göngugötunni lokað vegna upptöku RÚV

Vegna upptöku á sjónvarpsþætti í jóladagskrá RÚV verður Hafnarstræti lokað frá gatnamótunum við Kaupvangsstræti og að Ráðhústorgi í sólarhring; frá kl. 19 mánudaginn 14. nóvember, til kl. 19 á þriðjudaginn.

„Engir bílar mega vera í götunni þriðjudaginn 15. nóvember og því þarf að loka kvöldinu áður til að tryggja það gangi eftir. Lokanir eru við gatnamót Kaupvangsstrætis og Hafnarstrætis, Hafnarstrætis og Skipagötu og Hafnarstrætis og Brekkugötu,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins.