Fréttir
Getraunir: 3.744 krónur urðu að 3,2 milljónum
02.01.2024 kl. 14:04
Getspakur Akureyringur var með alla leikina rétt á enska getraunaseðlinum á laugardag og er fyrir vikið rúmum 3,2 milljónum króna ríkari. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslenskum getraunum.
„Tipparinn tippaði á vefnum og keypti svokallað sparnaðarkerfi þar sem hann tvítryggði 5 leiki og þrítryggði 5 leiki og var með eitt merki á þrem leikjum. Alls samanstóð kerfið af 288 röðum og kostaði 3.744 krónur.“