Fara í efni
Fréttir

Gangnamaðurinn sem slasaðist er látinn

Gangnamaðurinn sem slasaðist innarlega í Eyjafirði var látinn þegar björgunarmenn komu að honum. Greint var frá þessu á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra í morgun.
 
Maðurinn var hátt uppi í hlíðum Hagardals að norðanverðu, aðstæður voru erfiðar og mjög erfiðlega gekk að komast á staðinn. Ekki var mögulegt að nota þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem kominn var norður, vegna misvinda í dalnum og mikils uppstreymis.
 
Tilkynning lögreglunnar er svohljóðandi:
 
Eins og við greindum frá í gær þá voru viðbragðsaðilar í Eyjafirði kallaðir út um kl. 15:00 vegna aðila sem hafði verið í smalamennsku innarlega í Eyjafirði og slasast. Var þetta hátt upp í hlíðum Hagárdals að norðanverðu. Mjög erfiðlega gekk að komast til mannsins og þá var ekki hægt að notast við þyrlu LHG, sem kominn var norður, vegna misvinda í dalnum og mikils uppstreymis.
 
Þegar viðbragðsaðilar komust til hans var hann látinn. Tók þá við flókin fjallabjörgunaraðgerð þar sem færa þurfti manninn niður eina 500 metra í mjög brattri hlíð og bera hann síðan tæplega 3 km niður dalinn að flutningstæki sem þar var.
Þegar á leið verkefnið var óskað liðsinnis björgunarsveita úr Skagafirði og Þingeyjarsýslu og mættu hópar frá þeim og lögðu verkefninu liðsinni sitt.
 
Aðgerðum í Hagárdal lauk um upp úr kl. 23:00 í gærkveldi.
 
Þökkum við öllum viðbragðsaðilum sem komu að verkefni þessu, sem var mjög krefjandi, kærlega fyrir þeirra aðstoð. Um tildrög atviksins er ekki frekar vitað og er rannsókn í höndum lögreglu.