Fréttir
Gámar fyrir jólatré og flugeldarusl
02.01.2022 kl. 14:30
Mynd af vef Akureyrarbæjar.
Í byrjun janúar verður gámum fyrir jólatré komið fyrir við báðar verslanir Bónuss, við Hagkaup, verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð og Hrísalund.
Gámum fyrir flugeldarusl verður komið fyrir við báðar verslanir Bónuss sem og við húsnæði björgunarsveitarinnar Súlna við Hjalteyrargötu.
„Þegar lifandi jólatré hafa þjónað sínu hlutverki er mikilvægt að koma þeim í réttan farveg og sama gildir um rusl sem verður til vegna flugelda,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
„Íbúar bæjarins eru eindregið hvattir til að nota þessa gáma. Hjálpumst að við að hreinsa til eftir hátíðarnar og koma ruslinu rétta leið. Skiljum ekkert eftir, hvorki við heimili né annars staðar í bæjarlandinu.“
Flugeldarusl og jólatré verða ekki tekin við lóðamörk.