Fréttir
Fyrirlestur um Guðjón og Akureyrarkirkju
17.11.2022 kl. 10:58
Fyrirlestur um byggingarsögu Akureyrarkirkju og Guðjón Samúelsson arkitekt verður í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju í dag, fimmtudaginn 17. nóvember, kl. 16.30.
Fyrirlesari er Pétur Ármannsson, arkitekt. Tvö ár eru frá 80 ára vígsluafmæli kirkjunnar, þá var ekki hægt að halda upp á þau tímamót vegna Covid, en fyrirlesturinn átti að vera liður í afmælishaldinu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.