Fréttir
Fundi EBAK með þingmönnum frestað
26.01.2024 kl. 13:07
Almennum fundi kjarahóps Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) með þingmönnum kjördæmisins sem halda átti í Brekkuskóla síðdegis í dag hefur verið frestað vegna veðurs.
Fulltrúar flokkanna sem sæti eiga á Alþingi ætluðu þar að fara yfir sýn sína á stöðu þeirra sem eldri eru og svara ýmsum spurningum varðandi kjör eldri borgara.
Fundurinn átti að vera opinn öllum 60 ára og eldri og félagar í EBAK voru hvattir til að mæta. Til fundarins verður boðað síðar en ekki hefur verið ákveðið hvenær hann verður.