Frostreykur sveipar bæinn dulúð – MYNDIR
Snjó, frost og reyk í andardrætti þekkjum við vel á Akureyri. Það hefur þó verið óvenju fagurt vetrarveður undanfarna daga, en það er samspil mikillar snjókomu og rólegheita í vindinum, sem við getum þakkað fyrir. Snjórinn hefur fengið að lenda á trjám og húsum í friði, þar sem hann hefur getað hreiðrað um sig og staflast upp. Lognið skapar einnig einstaka hljóðvist í hvítri veröldinni, bílarnir renna hljóðlega framhjá og helst heyrist í krumma og brakið í fótatakinu.
En það er ekki bara reykur í andardrætti bæjarbúa, heldur er fjörðurinn líka að anda. Uppgufunin af Pollinum er búin að vera slík í dag, að það lagðist hálfgerð þoka yfir miðbæinn fyrir hádegi. Um tíma var Vaðlaheiðin í fullkomnu hvarfi og ekki hægt að sjá endanna á milli á Göngugötunni.
Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Blaðamaður Akureyri.net sló á þráðinn og fékk að tala við veðurfræðing á Veðurstofu allra landsmanna, Harald Eiríksson. „Við köllum það frostreyk, þegar uppgufunin af sjónum er mikil,“ segir Haraldur. „Varðandi snjóinn sem safnast saman um allt, þá sá ég svipaðar aðstæður hérna í borginni um helgina. Það hefur varla hreyft vind í nokkra daga, þannig að snjórinn nær að safnast meira upp heldur en við erum vön.“
Það er um að gera að fá sér göngutúr, þó að það sé kalt, og njóta fegurðarinnar sem vetrartíðin býður upp á þessa dagana.
Hér fylgja myndir af snjóskúlptúrum náttúrunnar, frostreyk og mildri birtu fyrri hluta dags í janúarlok á Akureyri – og annars konar birtu síðdegis eftir að sólin brá á leik.
Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson