Fara í efni
Fréttir

Framkvæmdir hafnar á Þórssvæðinu

Mynd af Facebook síðu Nesbræðra

Framkvæmdir eru hafnar á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs vegna gervigrasvallar sem á taka í notkun næsta vor. Um er að ræða svæðið Ásinn austan við keppnisvöll félagsins. Þar verður knattspyrnuvöllur í fullri stærð og æfingasvæði. 

Það eru Nesbræður sem vinna verkið fyrir Akureyrarbæ og á Facebook síðu fyrirtækisins er birt mynd þar sem sýnd er leið stórra ökutækja sem verða á ferðinni í hverfinu á næstunni.

Í færslu Nesbræðra segir:

Við erum byrjuð á jarðvegsskiptum í nýjum velli á Þórssvæðinu.
 
Verkið felur í sér að taka ofan af núverandi gras, fjarlægja lífrænan jarðveg (mold og fleira) og setja möl sem grunn undir nýjan völl.
Ofan á þann grunn fer svo annað eins lag af möl til að fergja völlinn.
 
 
Fargið er svo látið liggja á vellinum fram á vorið 2025 þegar við keyrum því í burtu. Vegna þessara framkvæmda munu stór ökutæki vera á ferðinni í Skarðshlíðinni.
 
Bílstjórar munu ávallt fara að öllu með gát en við biðjum vegfarendur við Bogann að horfa vel í kringum sig og sýna okkur biðlund ef vörubílar og önnur tæki eru að hægja á umferðinni.
 
Vinna hefst flesta daga rúmlega átta (eftir að skólar eru byrjaðir) svo börn á leið í skólann ættu öll að vera komin sína leið þegar við byrjum. En eftir kl. 16:00 erum við enn að svo þegar æfingarumferðin er hvað mest eru ökutæki einnig á ferðinni frá okkur.
 
  • Rauð lína á myndinni merkir vinnusvæðið. Það hefur verið girt af með girðingum.
  • Ekki er heimilt að leggja bílum við austurhlið Bogans, innan vinnusvæðis en neyðarbifreiðar hafa ávallt aðgang að þessari aðkomu.
  • Gul lína á myndinni merkir akstursleið tækjanna til og frá vinnusvæðinu
Frábært væri ef foreldrar/forráðamenn myndu upplýsa börnin sín um þessar framkvæmdir líka og biðja þau um að vera ekki við svæðið þegar verið er að vinna og hafa augu og eyru opin þegar þau eru að þvera Skarðshlíðina.