Fréttir
Framboðslisti VG hefur verið samþykktur
27.03.2022 kl. 22:15
Frambjóðendur VG á Akureyri ásamt Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, alþingismanni flokksins í Norðausturkjördæmi.
Framboðslisti Vinstri grænna á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí, var samþykktur á félagsfundi í dag, sunnudag. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi var sérstakur gestur fundarins og ávarpaði frambjóðendur og gesti.
Áður hafði farið fram bindandi forval um efstu sex sætin, þar sem Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, hlaut oddvitasætið og er hún því í efsta sætinu.
- Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, Akureyri
- Ásrún Ýr Gestsdóttir, háskólanemi, Hrísey
- Sif Jóhannesar Ástudóttir, verkefnastjóri, Akureyri
- Hermann Arason, framkvæmdastjóri, Akureyri
- Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, Akureyri
- Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, Akureyri
- Ólafur Kjartansson, vélvirki og fyrrv. framhaldskólakennari, Akureyri
- Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi, Akureyri
- Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur, Akureyri
- Angantýr Ómar Ásgeirsson, háskólanemi, Akureyri
- Katla Tryggvadóttir, menntaskólanemi, Akureyri
- Hildur Friðriksdóttir, alþjóðafulltrúi hjá HA , Akureyri
- Valur Sæmundsson, tölvunarfræðingur, Akureyri
- Karen Nótt Halldórsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, Grímsey
- Davíð Örvar Hansson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Akureyri
- Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri, Akureyri
- Helgi Þorbjörn Svavarsson, verkefnastjóri og hornleikari, Akureyri
- Fayrouz Nouh, doktorsnemi, Akureyri
- Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistarmaður, Akureyri
- Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari og sundþjálfari, Akureyri
- Ólafur Þ. Jónsson, fyrrv. vitavörður, Akureyri
- Kristín Sigfúsdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi og kennari, Akureyri