Fara í efni
Fréttir

Forsala vetrarkorta framlengd til sunnudags

Ákveðið hefur verið að framlengja forsölu vetrarkorta á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli til og með 8. janúar en í forsölunni má fá kortin á lægra verði en ella. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar. Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar.

Athygli fjölskyldufólks er einnig vakin á Lýðheilsukortinu þar sem fjölskyldur fá aðgang að Hlíðarfjalli, Skautahöllinni og Sundlaug Akureyrar á  góðum kjörum. Hér er að finna allar upplýsingar um Lýðheilsukortið.

„Snjóað hefur töluvert í Hlíðarfjalli síðustu daga en í snjóleysinu fram að því hafði verið framleiddur snjór í næstum 20 daga sem er gott undirlag fyrir hina nýföllnu mjöll af himnum ofan. Veðurspáin fyrir helgina lofar góðu,“ segir á vef bæjarins.