Fara í efni
Fréttir

Fimm handtekin vegna bílabruna

Frá vettvangi brunans. Eins og sjá má er Naustaskóli handan götunnar. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Lögreglan hefur handtekið fimm manns vegna gruns um aðild að bílabruna við Kjarnagötu í nótt og í morgun. Eins og fram kom í fréttum fyrr í morgun brunnu bílar við raðhús í Kjarnagötu og eru fjórar bifreiðar meira og minna skemmdar eftir því sem fram kemur í tilkynningu lögreglunnar.

Strax varð ljóst á vettvangi í nótt að ekki væri hægt að útiloka að um íkveikju væri að ræða, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Lögreglu barst svo aftur tilkynning um eld í bifreið í Naustahverfi kl. 10:04 í morgun og benti rannsókn lögreglu strax til að um íkveikju væri að ræða. Í framhaldinu handtók lögregla fimm manns í tengslum við málið.

Tilkynning lögreglunnar á Norðurlandi eystra er svolhjóðandi:

Kl. 03:20 í nótt fékk lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um eld í bifreiðum í Naustahverfi á Akureyri. Þegar lögreglan kom á vettvang var þegar uppi mikill eldur, sem var byrjaður að breiðast út í næstu bíla. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins en þá voru fjórar bifreiðar meira og minna skemmdar af eldi.

Lögregla hóf þegar rannsókn á eldsupptökum og var strax ljóst að ekki væri unnt að útiloka að um íkveikju væri að ræða.

Kl. 10:04 barst önnur tilkynning um eld í bifreið í Naustahverfi á Akureyri. Rannsókn lögreglu benti strax til þess að um íkveikju gæti verið að ræða. Eftir því sem rannsókninni vatt fram styrktist sá grunur og hafa nú 5 aðilar verið handteknir, grunaðir um aðild að málinu.

Rannsókn málsins heldur áfram en er á frumstigi, eins og gefur að skilja. Við sjáum fram á nokkuð umfangsmikla rannsókn og munum ekki geta veitt frekari upplýsingar um framgang hennar fyrr en eftir helgi.

Lögreglan hvetur alla þá sem hafa upplýsingar sem geta nýst við rannsókn málsins, til að gefa sig fram með þær upplýsingar. Hægt er að senda upplýsingar á netfangið nordurland.eystra@logreglan.is eða hringja í 112 og biðja um samband við varðstjóra á Akureyri.