Fara í efni
Fréttir

Fimm bíla árekstur við komuna í bæinn

Fjórir bílanna sem lentu í árekstrinum. Sá aftasti skemmdist nánast ekki neitt og var fjarlægður áður en myndin var tekin. Mynd: Þorgeir Baldursson

Fimm bílar lentu í árekstri eftir hádegið á Norðurlandsvegi, örskömmu eftir að ekið var inn fyrir bæjarmörk Akureyrar úr norðri. Sumir bílanna skemmdust töluvert en enginn slasaðist.

Hópur ungmenna á leið á Bíladaga var saman á ferð á níu bílum. Að sögn eins þeirra sem var undir stýri, en slapp við áreksturinn, hemlaði ökumaður sem var á undan hópnum skyndilega og nokkrir þeirra sem á eftir komu áttuðu sig ekki nógu snemma til að koma í veg fyrir óhappið.

Áreksturinn varð spölkorni áður en komið er að hringtorgi, þaðan sem gatan nefnist Hörgárbraut.

Nánar á eftir

Myndir: Skapti Hallgrímsson