Sverre liggur undir feldi og íhugar framboð
Sverre Andreas Jakobsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, íhugar alvarlega að gefa kost á sér í eitt af efstu sætum á lista Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta herma heimildir Akureyri.net.
Fari Sverre í framboð og nái kjöri fetar hann í fótspor föður síns, Jakobs Björnssonar, sem sat í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn fjögur kjörtímabil, frá 1990 til 2006, og var bæjarstjóri frá 1994 til 1998.
Einn Framsóknarmaður hefur lýst yfir framboði í oddvitasætið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar eins og Akureyri.net hefur áður greint frá, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, sem fetaði einnig í fótspor föðurins þegar hún hóf þátttöku í stjórnmálum. Faðir hennar, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, sat á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn 1991 til 1995.
Sverre, einn silfurdrengjanna frá því á Ólympíuleikunum í Kína 2008, er þjónustustjóri fyrirtækjaviðskipta á Norður- og Austurlandi hjá Arion banka. Hann er í þjálfarateymi karlaliðs KA í handbolta og svo skemmtilega vill til að samstarfsmaður hans þar, Heimir Örn Árnason, gaf á dögunum kost á sér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar!
Framsóknarmenn ætla að halda opið prófkjör 12. mars þar sem kosið verður um fimm efstu sætin. Í tilkynningu frá flokknum á dögunum voru allir Akureyringar hvattir til þess að kjósa.
- Framsóknarflokkurinn á nú tvo fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar. Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Ingibjörg Ólöf Isaksen skipuðu tvö efstu sætin fyrir fjórum árum, Guðmundur Baldvin hættir í bæjarstjórn í vor eftir 12 ára setu og Ingibjörg hætti í haust eftir að hún var kjörin á Alþingi. Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, sem tók sæti Ingibjargar í bæjarstjórn í haust, mun ekki gefa kost á sér í eitt af efstu sætunum.