Fara í efni
Fréttir

Fatakort að andvirði 6,2 milljóna króna

Í síðustu viku úthlutaði Rauði krossinn við Eyjafjörð 524 fatakortum til fólks á starfssvæði deildarinnar sem óskaði eftir aðstoð í gegnum jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis. Þetta kemur fram á vef Rauða krossins.

Að Velferðarsjóðnum standa Rauði krossinn við Eyjafjörð, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Hjálpræðisherinn. Hvert fatakort er að verðmæti 5.000 krónur og nemur úthlutun Rauða krossins að þessu sinni því samtals rúmum 2,6 milljónum króna, en í heildina hefur úthlutun í formi fatakorta árið 2022 numið 6,2 milljónum króna á árinu.

„Þessa vikuna er svo 50% afsláttur af öllu nema ullarvörum í verslun Rauða krossins á Akureyri, svo hægt er að auka verðmæti hvers korts verulega,“ segir á vefnum. „Við þökkum þeim sem komið hafa fötum sem ekki eru lengur í notkun til okkar og ekki síður þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem koma að flokkun og sölu fatnaðar, því án sjálfboðaliða væri þessi aðstoð ekki möguleg.“

_ _ _

Rauði krossinn við Eyjafjörð sinnir afar fjölbreyttum verkefnum og veitir ekki af fleiri sjálfboðaliðum, segir á vefnum. Spurt er: Hefurðu áhuga á að taka þátt? Hér er hægt að skrá sig.