Fara í efni
Fréttir

Færðu KAON 2 milljónir í minningu Aðalbjargar

Þorsteinn Már Baldvinsson, lengst til vinstri, Jenný Valdimarsdóttir og Gústaf Baldvinsson.

Gústaf Baldvinsson og Þorsteinn Már Baldvinsson færðu í vikunni Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis (KAON) tvær milljónir króna til styrktar starfsemi félagsins. Þetta gera þeir í minningu Aðalbjargar Hafsteinsdóttur sem hefði orðið 65 ára í dag en hún lést á síðasta ári. Hún rak líkamsræktina Bjarg á Akureyri um árabil ásamt Ólafi Óskari Óskarssyni eiginmanni sínum; þau voru gjarnan kölluð Abba og Óli á Bjargi.

Á vef KAON er birt eftirfarandi yfirlýsing frá þeim vinum, Gústaf og Þorsteini Má:

„Félagið gegnir afar mikilvægu hlutverki í okkar heimabyggð, til að mynda með stuðningi og ráðgjöf við fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Við tileinkum framlagið minningu Aðalbjargar Hafsteinsdóttur, sem hefði orðið 65 ára í dag 11. janúar en hún lést 8. ágúst á nýliðnu ári.

Hún var einstaklega glaðvær og bjartsýn í áralangri baráttu sinni við krabbamein og studdi marga af krafti á erfiðum stundum með jákvæðnina að leiðarljósi. Framlag Aðalbjargar til eflingar lýðheilsu var alla tíð einlægt og áhrif hennar til að auka lífsgæði fólks á starfssvæði KAON voru ómetanleg.

Við erum þakklátir Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrenni fyrir starfsemina og óskum því velfarnaðar. Sannarlega er þörf á slíku félagi í okkar heimabyggð.“

Á vef félagsins segir að svona styrkir koma sér einstaklega vel í rekstri þess. Félagið sé alfarið rekið fyrir sjálfsaflafé, þ.e. stuðning frá félagsmönnum, einstaklingum og fyrirtækjum á svæðinu, ásamt rekstrarstyrk og verkefnastyrkjum frá Velunnurum Krabbameinsfélags Íslands.

„Félagið er þeim ævinlega þakklátt fyrir að hugsa aftur til okkar og styrkja. Með svona stuðning getum við haldið okkar mikilvægu starfsemi gangandi.“