Fara í efni
Fréttir

Faðir 13 ára stúlku sem kennari löðrungaði segir frá

Akureyringurinn Ásgeir Ólafs fékk Dalvíkinginn Kristján Má Þorsteinsson í nýjan hlaðvarpsþátt, Viðtalið, þar sem Kristján Már ræðir mál 13 ára dóttur sinnar sem mikið var í fréttum nýverið.

Í síðasta mánuði var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Norðurlands eystra þar sem kennara við Dalvíkurskóla voru dæmdar átta milljónir króna í skaðabætur vegna uppsagnar, sem kom til vegna atviks á skólalóðinni á síðasta ári þegar kennarinn löðrungaði nemanda, umrædda stúlku.

„Þetta er ótrúleg frásögn af máli sem er að setja sér fordæmi í Íslandssögunni. Aldrei fyrr hefur verið ráðist jafn grimmt á barn á svo mörgum vígstöðvum,“ segir Ásgeir um frásögn Kristjáns.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.