Fá fé til að efla barna- og unglingageðteymi SAk
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita barna- og unglingageðteymi (BUG) Sjúkrahússins á Akureyri 15 milljónir króna árlega næstu þrjú ár (2023 til 2025) með það að markmiði að mæta þörfum barna og ungmenna fyrir tímabæra þriðja stigs geðheilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram á vef SAk í morgun.
„Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á að samfélagsleg áföll á borð við heimsfaraldur reyni almennt á geðheilsu einstaklinga og geðheilbrigði þjóðar, þá sérstaklega viðkvæma hópa samfélagsins s.s. ungmenni og fólk með geðraskanir,“ segir á vef SAk.
„Með þessari fjárveitingu er markmiðið að tryggja aðgengi barna og ungmenna að geðheilbrigðisþjónustu SAk með því að efla þjónustu BUG teymis og stytta biðlista og biðtíma eftir greiningarviðtölum og gagnreyndari meðferð.
SAk fagnar þessari ákvörðun ráðherra og verður farið í viðbótar ráðningar fagstétta í BUG teymi til að efla þjónustu þess.“
Frétt síðan í haust: Þjónusta geðdeildar við börn efld tímabundið